Fróði


DSC_0064Fróði er af tegundinn Tíbet Spaniel. Hann fæddist þann 30. október 2005 og er því rúmlega tveggja ára. Fróði kom til mín þegar hann var tæplega fimm mánaða gamall og hafði þá búið í sveit. Í ættbók heitir hann Ísperlu Rómeó.Foreldrar hans eru Perla og Íslands-Bitru Sesar. Ég sá hann auglýstann á mbl.is og hafði samband við ræktandann hans sem var þá kominn aftur með hann í

2008_0316Fjöruferð0034

 hendurnar. Ég fór að skoða hann skömmu síðar og tók hann heim með mér sama kvöld. Þetta var ást við fyrstu sín og ég vissi að Fróði var ætlaður mér.

 Ég gæti ekki beðið um betri hund. Hann

 er yndislegur í alla staði. Þrjóskari skepnu hef ég þó ekki kynnst, en hann er alltaf með á hreinu hvernig hann vill hafa hlutina. Hann er um leið afskaplega blíður umburðarlyndur. Leyfir mömmu sinni allt. Hann elskar að fara í langa göngutúra og hitta hundavini sína. Fróði er stór hundur í litlum líkama. Hann elskar að rífa kjaft við aðra hunda og gera sig stóran og merkilegan. Allavega svo lengi sem það er safe.

2008_0322fjöruferðpáskar0045 

Fróði með Mola, bestasta vini sínum á myndinni til hægri.

Um leið og Fróði er afskaplega sjálfstæður og sterkur karakter þolir hann mjög illa einveru og þjáist af aðskilnaðarkvíða. Hann er afskaplega vanafastur og á erfitt með allar breytingar. Fróði er soldið hlédrægur, þó hann taki alla í sátt er hann mislengi að opna sig fyrir þeim. En allir þeir sem fá að kynnast honum verða yfir sig hrifnir af honum. Ég er svo þakklát fyrir hann Fróða minn og veit að Guð skapaði hann bara handa mér 

.