
Nú er orðið ansi langt frá sístu færslu og kannski í lagi að koma með smá update. Ég átti rosalega fína helgi í Kristiansand fyrir viku, þegar ég heimsótti Henriette, fyrrum bekkjarsystur mína. Ég fékk aðeins að kynnast vinum hennar á kollektívinu þar sem hún býr og var svo heiðursgestur í afmælisveislunni hennar á laugardeginum.
Ég fékk ódýra miða í rútuna, en þetta er fimm tíma ferðalag í tveggja hæða rútu með þráðlausu interneti. Ekki sem verst og svo fékk Fróði að fljóta ókeypis með og var hæstánægður í bílbelti í sætinu við hliðina á mér.
Ég er mjög ánægð að ég skellti mér og ekki veitti af að hlaða batteríin fyrir vinnuvikuna sem nú er loks á enda. Yfirmaðurinn minn í vinnunni var að fara úr límingunum í jólastressi og tók það allt út á mér. Ég var alveg að fara að springa og var gjörsamlega uppgefin þegar ég kom heim úr vinnunni í gær. Nú fæ ég að pústa smá, allavega á morgun áður en ég mæti aftur á þriðjudag. Í dag vann ég í sunnudagaskólanum með Sakaríasi sem var bara ágætt. Ég og Camilla vorum svo búnar að ákveða að hittast niðrí bæ og fara í messu, en henni var boðið í mat svoleiðis að ég var bara heima að þrífa. Á morgun ætla ég svo í einhvern góðan göngutúr með Fróða og planið er að hafa myndavélina með. Camilla verður kannski með í för, en hún er orðin eitthvað lasin svo kannski það verðum bara við Fróði.
Ég fór til læknis á föstudaginn, vegna útbrota sem ég er með yfir nánast allan efri hluta líkamans. Læknirinn tók blóðprufu og sagði mér að leita snarast til húðsjúkdómalæknis, svo vonandi fæ ég tíma sem fyrst.
Í dag er einungis vika þangað til ég kem heim og ég hlakka alveg óendanlega mikið til. Vona innilega að næstu dagar verði fljótir að líða!

