Messa og kyrrðardagur

Trefoldighetskirken-62287

Trefoldighetskirkjan í Ósló

Vikan hófst ágætlega, en við Camilla áttum fínt kvöld saman á sunnudeginum og fórum í mjög góða Guðsþjónustu Trefoldighetskirken. Þetta er afar falleg gömul kirkja og virkilega notalegt að fara í messu þarna. Sniðið var fremur óhefðbundið og falleg og lifandi tónlist. Presturinn tók meðal annars viðtal við norskan stjórnmálamann, en dóttir hans tók líf sitt eftir að hafa farið í persónuleikapróf á vegum vísindakirkjunnar í Frakklandi í fyrra. Málið vakti mikla athygli fjölmiðla hér í Noregi og sterka andstöðu gegn vísindakirkjunni. Ég varð mjög snortin af þessari frásögn og hef þennan mann og fjölskyldu hans í bænum mínum. 

Á mánudeginum fór ég til Solasen með hóp úr PT (verklegri/praktískri Guðfræði) þar sem við áttum hljóðan bænadag saman í fallegum kofa með útsýni yfir Oslófjörðinn. Ég hefði eflaust notið dagsins betur ef ég hefði ekki fengið mígreniskast aldarinnar. Í lestinni á leiðinni heim varð ég náföl og hristist og skalf og hélt það myndi hreinlega líða yfir mig. Ingveld bekkjarsystir mín reyndist mér afar vel og fór með mér á læknavaktina. Þar sem ekki var útlit fyrir að ég kæmist að í bráð fórum við í apótek og ég tók tvöfaldan leyfilegan skammt af sterkustu verkjalyfjunum sem ég mátti kaupa án lyfseðils og þá fyrst fór sársaukinn að minnka. 

Ég drattaðist samt í skólan daginn eftir og í dag, og náði meira að segja að áorka heilmiklu í dag. Greiddi leigu og tryggingar, stússaðist í hinu og þessu og fór svo í klippingu, sem var vægast sagt þörf á. Inná milli hef ég þó verið iðin við að horfa á fyrstu seríu af Heroes sem ég keypti notaða á 100 kall :þ 

Á morgun tekur við tiltekt og lærdómur, en María systir kemur á föstudag!!! Við erum komnar með fína dagskrá fyrir helgina og stefnum meðal annars á að fara í Tusenfryd á laugardaginn!

Hafið það gott :)