Komin í jólafrí

Tíminn flýgur og nú eru jólin ekki langt undan. Ég kem á klakann eftir 2 og hálfa viku! Pælið í því! Tilhlökkunin er nottla ekkert lítil. Ég er komin í jólafrí frá skólanum sem er bara yndislegt. Búin að skila af mér öllum verkefnum og fór í prófið mitt á mánudaginn og það gekk bara ágætlega, held ég. Á sunnudeginum fyrir próf ákvað ég bara að vera kærulaus og skellti mér á aðventukvöld heima hjá Ingvild, bekkjarsystur minni. Auk mín hafði hún boðið Miriam og Eirin, fyrrum skólasystrum úr MF. 

DSCF3696

Hér eru Miriam og Ingvild að föndra jólakort

DSCF3697

Ég og Eirin tókum nottla þátt.

Fróði var vinsæll um kvöldið, en Knut Helge, maðurinn hennar Ingvild var mjög hrifinn af honum og má alveg segja að það hafi verið gagnkvæmt. DSCF3699

Fróði naut þess alveg í botn að vera klappað og klórað í bak og fyrir :D

Til viðbótar við jólakortin voru bakaðar súkkulaði kökur og sykraðar möndlur. Ég hélt mig þó frá bakstrinum til að falla ekki í freistni, en ég tók myndir af góðgætinu svo þið áttið ykkur nú á hvurslags góðgæti ég lét EKKI inn fyrir mínar varir :P

DSCF3706

Möndlurnar hér að ofan, og ekki má gleyma DSCF3703súkkulaðikökunum.

DSCF3714

 Ég varð svo auðvitað að segja þeim frá hvurslags siðir og hefðir við höfum á jólunum heima. Það fannst þeim alveg stórmerkilegt og hlógu þegar ég sagði þeim frá kartöflunni sem óþekku börnin fengju í skóinn. Ég var búin að stríða þeim töluvert um kvöldið, með athugasemdum sem þær mistúlkuðu sem kaldhæðnislegar og að launum fékk ég kartöflu með rauðum borða!

Það eru svo fleiri myndir af kvöldinu á myndasíðunni :)

Það var svo daginn eftir þetta frábæra aðventukvöld að ég fór í próf sem gekk bara ágætlega. Í gær fór ég svo í heimsókn til Camillu með jóladagatal sem ég hafði útbúið handa henni og við  elduðum saman alveg rosalega gott grænmetislasagna, við fjarlægðum plöturnar og settum kjöt í staðinn þannig það má kannski með réttu segja að við höfum framið gróf helgispjöll á þessari uppskrift, en afraksturinn var mjög, mjög góður :p (Takk fyrir uppskriftina Fjóla :D)

Í dag hefst svo fyrsti af mörgum vinnudögum fyrir jól, en tíminn flýgur og nú á laugardag skellum við Fróði okkur í sex tíma rútuferð til Kristiansand að heimsækja fyrrum bekkjarsystur mína :)

Hafið það gott og njótið aðventunnar!