Tíminn flýgur og þessi vika er bráðum á enda! Prófið mitt nálgast óðum auk ófárra skilafresta og því búið að vera svolítið stress síðustu daga. Í ofanálag er ég að vinna á morgun, en ég kippi bókinni með ef ég skyldi fá tækifæri til að lesa.
Í dag er ég búin að vera þrjár vikur í fráhaldinu mínu! Þetta hefur gengið vonum framar, en þó ekki áreynslulaust. Árangurinn lætur heldur ekki á sér standa og ég hef grennst um tæpar tvær fatastærðir á þessum þrem vikum, sem verður að teljast nokkuð gott. Þá er bara að vona að þróunin haldi áfram í þessa átt næstu vikur og mánuði :)
Á sunnudaginn, afmælisdaginn hennar mömmu, verður Hundelivsmesse á Hellerudsletta og ég og Camilla munum að sjálfsögðu mæta. Ég hlakka til enda verður nóg um að vera: hundafimi, hundadans, sölu og kynningarbásar og þar fram eftir götunum. Vonandi heldur Fróði sig á mottunni í þetta sinn, en hann tók nokkrar gelt aríur þarna síðast, eða alveg þangað til bullmastiffinn fyrir framan hann fékk nóg og senti honum illt auga. Þá snarþagnaði minn.
Þetta er þó ekki öll dagskráin því um kvöldið kemur Marte í heimsókn og við munum allar þrjár borða kvöldmat saman. Ég á því vonandi góða helgi í vændum og vona að helgin ykkar verði líka ánægjuleg.

