Helgin er komin


GarfieldRelaxingWeekend001Þetta hefur verið annasöm vika, og ég er fegin að nú sé helgin loksins gengin í garð. Þessi vika var pökkuð af fyrirlestrum og tveim prófum auk þess sem ég hef verið að vinna. Það hefur verið gott að hafa nóg að gera, en ég fór aðeins yfir strikið núna og varð gjörsamlega örmagna á miðvikudagskvöldinu og orkaði ekki að mæta í tíma, heldur fór bara að þrífa hjá Klöru í staðinn og lærði svo undir Grískupróf þegar heim var komið. 

Það hefur annars bara gengið nokkuð vel í náminu. Hefði þurft að lesa aðeins núna um helgina og byrja á einhverjum verkefnum, enda vil ég vera búin með sem mest áður en ég fer heim í október. Að því gefnu að ég verði ekki kölluð út í vinnu á morgun (veit að það vantar) verður bara afslöppun og smá tiltekt hér heima og svo kemur Camilla til mín eftir vinnu og við ætlum að borða saman og hafa það kósí. Fróði kallinn er svoleiðis búinn að þvælast með mér út um allt í töskunni, en ég er að skoða það núna að setja hann á hundaleikskóla kannski 1-2 í viku svo hann fái að hitta aðra hunda og svona, þar sem ég hef svo hrikalega mikið að gera. 

Ég er annars nokkuð sátt við þessa síðu og vona að einhverjir kíki hér inn annað slagið og skrifi einhverjar athugasemdir. Mér þætti allavega afar vænt um það, enda búin að hafa mikið fyrir því að koma þessari síðu á laggirnar :þ

Hafið það nú gott og njótið helgarinnar, hvort heldur heimafyrir eða í vinnu!