Nú eru einungis 5 dagar í að ég komi á klakann og ég get varla beðið!!! Tíminn verður hins vegar fljótur að líða þangað til enda þarf ég að skrifa verkefni, mæta í skóla og vinnu, þvo þvott og já, þetta vanalega.
Í gær hélt ég andakt í skólanum mínum, það gekk vonum framar og ég fékk mjög góð viðbrögð frá kennaranum og nemendunum i hópnum mínum. Það var svo strax í næsta tíma sem ég þurfti að vera með míní fyrirlestur um "tegntrekanten" sem gekk bara mjög vel líka.
Eftir skóla fór ég svo að ná í nýju gleraugun mín í gleraugnabúðina á horninu á Majorstuen. Ég skellti nýju glyrnunum strax á nefið, en hef kannski ekki gefið mér nógan tíma að venjast þeim því ég flaug á hausinn ca 2 metrum frá gleraugnabúðinni og lenti kylliflöt á götunni. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, en hafði í fallinu misst tauminn hans Fróða, hann hætti þó við að stinga af þegar hann sá ég hafði meitt mig. Bilarnir höfðu líka sem betur fer séð okkur og hægt á sér en ég dröslaðist á fætur og brosti til vegfarenda og sagði það væri allt i lagi með mig. Ég var hins vegar öll lurkum lamin og þegar ég kom heim tók ég verkjalyf. Ég ætlaði svo snemma í háttinn og lesa grískuglósur uppí rúmi, en þegar ég teygði mig eftir bókinni þrusaði ég kjammanum í skápahurðina og braut uppúr tönn.
Svoleiðis að í dag er ég tognuð í úlnliðnum, bakið í skralli og aum í kjálkanum með skaddaða tönn.
Geri aðrir betur!

