Engin afslöppun í dag...

DSCF3568

...Nema kannski hjá Fróða!

Ég lét auðvitað plata mig í vinnuna í dag og ég og Fróði gerðum okkar besta að plata fólk til að versla. Verslunarmiðstöðin var hins vegar nær alveg tóm eftir þrjú, sem er reyndar venjan á laugardögum þar sem vínbúðin lokar þá. Á morgun verður hins vegar gerð önnur tilraun til að njóta "helgarfrísins" áður en annasöm vika tekur við. Ég ætla að fara í hundagarðinn með Fróða áður en ég hitti Camillu niðrí bæ klukkan 4. Við ætlum að borða saman og fara svo í messu í Trefoldighets kirken. 

Ég fékk pappírana frá Vis Agria í póstinn í dag svoleiðis að nú er Fróði karlinn tryggður í bak og fyrir. 

Varðandi síðuna þá hef ég verið dugleg að vinna í henni og vonandi lítur þetta ágætlega út. Svo er auðvitað skylda að skilja eftir komment :)