Bráðum koma....

.....blessuð prófin. Eða prófið. Nú er einungis rúm vika í prófið mitt og ég er búin að vera í töluverðu stressi, enda hellingur sem ég þarf að lesa og ekki bætir vinnan úr skák. Síðasta helgi var þó alveg frábær, það er að segja sunnudagurinn. Mamma átti þá 59 ára afmæli á meðan ég skellti mér á Hundelivsmessen með Camillu og Torje. 100_0107Ég gleymdi auðvitað myndavélinni, en rændi nokkrum myndum af vélinni hennar Camillu og setti inná síðuna. Ég keypti helling af fóðri gotteríi fyrir Fróða og fékk ókeypis heilsufarsskoðun fyrir kappann. Dýri þreyfaði hann í bak og fyrir og hann hefur nú að fullu náð sér í líðunum. Dýri sagði ennfremur að þetta hefði verið vegna þess að við fórum okkur of geyst í hundafiminni. Nú þarf ég að byggja hann upp smátt og smátt en við ættum að geta farið að æfa aftur innan skamms, sem eru nottla frábærar fréttir. 100_0131

Ég ákvað svo að gerast áskrifandi af Vi Med Hund, þar sem það var á einhverju svaka tilboði og fékk í tilefni þess senda þessa forsíðu með mynd af sjálfum kappanum. 

vimedhund

Gæti nottla ekki verið meira sammála niðurstöðu kviðdómsins:p

Ég fór líka loks í gegnum myndirnar frá Íslandsheimsókninni , en albúmið er hérna á síðunni. 

DSCF3635

Endilega kíkið á þær :D


Það er kominn töluverður jólablær á síðuna mína, en ég ákvað að það væri þörf á smá jólastemmingu núna í myrkri, rigningu og kulda. Í dag var ég í vinnunni með Fróða kallinn, en þar á hann dyggan aðdáendahóp. Fólk sem vinnur í senterinu og kemur bara til að heilsa uppá prinsinn. Eftir vinnu keypti ég jólaljós í gluggana hjá mér og lítinn dúk til að hafa á borðinu. Svo verður jólahreingerning eftir prófið þar sem verður skreytt rækilega. 

Í desember er dagskráin vel þjöppuð enda verð ég að vinna helling og kíki svo til Kristiansand í heimsókn til Henriette vinkonu. Í næstu viku eru hins vegar þrír skilafrestar sem renna upp og áframhaldandi prófalestur og vinna í fyrramálið. 

Mitt í öllu þessu er ég dugleg í fráhaldinu mínu, en er þakklát fyrir allar bænir, sérstaklega núna í prófkvíðanum.