Hér verður skrifað um margt það sem á daga mína drífur hérna í Noregi.
Blogg
Sólin lætur sjá sig
Við höfum það ágætt hérna á Jutulveien. Að vana hef ég í nógu að snúast með vinnu, skóla og hvolpauppeldi! Emma hefur tekið framförum undanfarna daga. Hún er byrjuð að höndla það mun betur að vera ein heima og í dag fór hún sjálf inní hvolpagrindina þegar ég var á leiðinni út í dag :) Taumþjálfun og umhverfisþjálfunin krefst mikillar þolinmæði, helling af hundanammi og óteljandi "ossofiiiiiiin." En þetta er allt að koma. Sólin er loks farin að láta sjá sig hér í Osló og síðustu daga hefur hitinn farið yfir frostmarkið um miðdegið. Síðustu helgi fór ég í göngu til Lilleroseter með Camillu, Torje og voffana. Ég tók nokkrar myndir en svo eru fleiri í myndaalbúminu ;)
Norðmenn og skíðin þeirra!

Emma var hörkudugleg að labba, en þáði líka alveg far í jakkanum hennar Camillu þegar það var í boði.

Ein af okkur litlu fjölskyldunni í lokin :)

Fróði fór í aðgerðina í gær og það gekk bara mjög vel. Hann er með fimm spor á hnakkanum og þarf að vera í hrikalega hallærislegum hvítum samfestingi sem hann er EKKI hrifinn af! Ég fór samt í smá göngu með þau í dag enda æðislegt veður og Fróði var dauðfeginn að fá að fara úr samfestingnum :p

Fróði er því miður búinn að vera duglegri enn Emma að leggja á sig og er orðinn 8.1 kíló :s

Emma fer sjaldnast langt frá stóra bróður

Höfðinginn. Ég held svei mér þá að hann sé að verða rauðhærður einsog afi sinn...

Systkinin

Að vana enda ég bloggið á mynd af Emmu litlu, sem er ennþá bara eitt kíló og 16 vikna...

Vona þið eigið góða viku, sakna ykkar allra hrikalega.
Snjór og hrak....
Kristín benti mér á það í gær að nú væri kominn tími á nýtt blogg og ég var nú alveg sammála því :p Emma litla hefur haldið mér frekar upptekinni undanfarnar vikur. Tíminn hefur flogið og hvolpauppeldið hefur bæði verið skemmtilegt og erfitt á tímum. Emma er ákveðin ung dama og prófar svoldið mörkin og það er enn ýmislegt sem hún á ólært. Hún er rosalega opin og elskar alla, finnst fátt skemmtilegra enn að vera í fjölmenni, þá er rófan á fullu og nóg af tvífætlingum að heilsa uppá.
Það er ótrúlegt að það séu rúmar þrjár vikur frá því Halla fór heim, en ég hefði svo gjarnan viljað hafa hana lengur hjá mér. Við náðum ekki að gera svo margt, en kíktum þó í heimsókn til Örnu.


Emma litla hefur upplifað ótrúlega margt nýtt á síðustu vikum, meðal annars fyrsta baðið, sem var ekkert sérlega æðislegt...


Hér hefur verið skítakuldi og snjór allan þennan mánuð svoleiðis að göngur hafa verið fáar og stuttar. Við Camilla fórum þó í stutta göngu í skóginum um daginn.







Muna svo að klikka á linkana til að sjá fleiri myndir ;)
Það hefur gengið vel að hafa Fróða og Emmu saman. Þau leika sér og kítast öðru hvoru um bein, en Fróði passar mjög vel uppá hana. Næstum einum of því hann gengur fyrir hana ef aðrir hundar vilja heilsa uppá hana :p


Ég hef svo verið að bauka ýmislegt annað, er búin að stofna bænahóp með Miriam og Camillu en við hittumst á hverjum fimmtudegi sem er bara æðislegt :D Ég er svo komin í grískuhóp með Ingveld og Silje en við hittumst sirka einu sinni í viku. Ég er rosa þakklát fyrir þetta og líður betur, þó ég sé ennþá að kljást við kvíða og einbeitingarleysi og undanfarnar vikur hafa verið margir mjög erfiðir og einmannalegir dagar.
Matarprógrammið gengur vel og hef nú misst 25 kíló á síðastliðnum 4 mánuðum :D :D :D Ég er ofsalega glöð og ánægð með þennan árangur, en ég verð samt líka að segja að hann var vel verðskuldaður. :D Nú hef ég fengið leyfi til að borða hrökkbrauð í hádeginu og það er líka bara æði, tapaði mér í búðinni og keypti allskonar osta og álegg til að hafa á hrökkbrauðinu mínu :D
Ég fór með Fróða sætamús til dýralæknis í dag þar sem hann er kominn með einhvern hnúð á hnakkann. Dýri sagði að þetta væri sýktur fitukyrtill sem þarf að fjarlægja. Þannig að Fróði fer í aðgerð á mánudag eftir viku þar sem kyrtillinn verður skorinn burt og tannsteinn fjarlægður. Ekki stór aðgerð og vonandi dekka tryggingarnar eitthvað af þessu.
En ég ætla að enda þetta blogg á Emmu litlu sem er orðin 16 vikna og 1 kíló :D (Hvernig ætlar þú eiginlega að verða á litinn?)

Vona þið eigið góða helgi :D
Emma er komin!

Í gær fór ég útá flugvöll með hjartað í buxunum að taka á móti Höllu og hvolpunum. Ég hafði miklar áhyggjur af tollinum og hafði legið á bæn allan morguninn. Klukkan korter yfir eitt kemur svo Halla mín inní komusalinn með kerru hlaðna farangri og búrinu með hvolpunum efst. Ég mundi nú að knúsa Höllu áður en ég rak nefið í búrið og þar tók á móti mér blautur koss á nebbann frá henni Emmu minni sem þekkti mig einsog skot.

Edh litli hjúfraði sig að systur sinni innst í búrinu. Ferðin heim í snjó og roki var löng og gott að komast inn í hlýjuna með hvolpakrílin. Emma kom strax útúr búrinu, meig á pissumottuna og rauk svo undir sófa að skíta. Edh þurfti aðeins lengri tíma til að koma út, en þá varð líka rosa stuð! Fróði þefaði aðeins af þessum hvolpavitleysuingum og fór svo og lagði sig.

Við Halla vorum líka alveg búnar á því og eftir að hafa farið með Edh til Lindu og Markúsar, sonar hennar, þar sem hans var beðið með mikilli eftirvæntingu. Við fengum okkur í gogginn og fórum svo í háttinn, en Emma svaf alla nóttina í búrinu sínu þegjandi og hljóðalaust (fyrir utan smá tíst þegar ég fór á klósettið).
Dagurinn í dag var líka viðburðarríkur fyrir Emmu litlu, en við skelltum okkur í smá bæjarferð með voffana. Ég fór í dýrabúð og ætlaði að fá beisli fyrir Emmu en allt var of stórt. Í staðinn keypti ég nýjar buxur þar sem allt er orðið of stórt. Við kíktum svo í Bok og Media og þar var Emma að sko í essinu sínu. Hljóp útum í allt, eða eins og taumurinn leyfði og meig svo á gólfið! Fróði fékk þá fyrst áhuga á henni og ætlaði að leika við hann, eins og honum einum er lagið, með því að hoppa á hana. Það fannst Emmu ekki skemmtilegt og hún hikaði ekki við að urra á hann og sýna honum tennurnar (ég efast þó um að hann hafi séð þær því þær eru svo litlar).

Það eru fleiri myndir á myndasíðunni :)
Í kvöld bauð Arna okkur í mat sem var rosalega kósí. Við fengum að sjá Sigrúnu sem hefur stækkað helling og kjöftuðum svo alltof lengi þannig að við misstum af síðasta strætónum heim og þurftum að taka leigubíl. Það var samt bara ágætis lúxus og við ákváðum bara að njóta þess. Nú erum við komnar aftur í íbúðina, frekar uppgefnar eftir langan dag, allir nema Emma sem þýtur um allt einsog skopparakringla.
3 dagar!!!
Miðvikudagurinn nálgast óðum þegar hún HAlla mín mun lenda á norskri grund með Emmu mína og Edh bróður hennar. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á af mér að gera, ég er svo spennt að fá hana Emmu mína í hendurnar. Mamma fékk hana lánaða á föstudaginn og hringdi í mig á Skype svo ég gæti fengið að sjá litlu músina mína. Halla og Sigga kíktu svo í heimsókn til mömmu og það var rosa gaman að heyra í þeim líka.

Annars hafa undanfarnir dagar verið nokkuð viðburðarríkir. Meðal annars fór ég til Camillu með Fróða að hitta Fríðu og það gekk mjög vel framanaf. Svo ákvað Fróði að hann ætlaði að vera hræddur við Fríðu og vildi ekkert með hana hafa. Fríða svaraði samt fullum hálsi ef Fróði var að ybba sig, en þeim tókst ekki alveg að vinna úr þessu svo vonandi gefst tækifæri á því fljótlega.
Fjölskyldan
Fríða sæta
Sjáið hvað Fróði er ósáttur með þetta! Þekki þennan svip sko alveg alltof vel!!! Fleiri myndir hér.
Á föstudagskvöldinu var svo annar hittingu bænahópsins, sem var bara æðislegt. Ég er rosalega ánægð að við skulum hafa hrint þessu í gang loksins.
Í gær kíkti ég á hundasýningu í Exðorama, Hellerudsletta, þar sem Hundelivsmessen er haldin. Það var mjög áhugavert og ég smellti af nokkrum myndum. Um kvöldið fór ég svo á Korsvei kvöld og hitti Henriette sem ég heimsótti rétt fyrir jól og það var mjög kósí.
Það verður svo nóg að gera núna þar til Halla og hvolparnir koma. Ég þarf að taka til og þrífa hérna heima, er svo að vinna á mánudag eftir skóla og mögulega á þriðjudag líka. Það þýðir vonandi að tíminn verði fljótur að líða, því ég er að farast úr spenningi. Búin að gera allt tilbúið fyrir litlu skvísuna, búin að fá handa henni búr og bæli og beisli, allt bleikt auðvitað. Maður verður nú aðeins að fá að tapa sér í bleiku deildinni þegar maður loksins getur :þ
Að lokum ætla ég að deila með ykkur mynd sem ég tók af lásnum útidyrahurðinni, INNANVERÐRI þegar frostið hérna var komið niður fyrir 20 gráðurnar.

Farið vel með ykkur, get ekki beðið eftir að koma með myndaspam af Emmu þegar hún kemur :D:D:D
12 DAGAR!!!

Tíminn hefur liðið hægt undanfarna daga og biðin eftir Emmu löng. En hún hefur það gott hjá Önnu Jónu og systkinum sínum heima á Íslandi. Kristín kíkti í heimsókn og tók myndir sem ég rændi og setti á síðuna mína. Halla mín kemur svo með Emmu og Edh bróður hennar til Noregs eftir 12 daga! Mér hefur verið falin sú ábyrgð að finna Edh heimili hér í Noregi, en hann mun að öllum líkindum búa hjá yfirmanninum mínum í töskubúðinni og börnum hennar tveim og Border Collie hundinum Leo.
Edh sæti
Ég fæ reglulega fréttir af Emmu litlu en hún stendur sig rosa vel og er algjör töffari. Það verður æðislegt að fá hana hingað og ég er rosa spennt að sjá hvernig Fróði tekur henni.
Emma sæta
Í millitíðinni fær hann þó að kynnast Fríðu, nýja hvolpinum hennar Camillu sem hún fékk í dag og er blanda af Risa Púðlu og Flat Coated Retriever.

Ég er að reyna að komast í skólagírinn, en hef átt frekar erfitt með að rífa mig úr jólagírnum og einbeita mér að bókunum. Lánasjóðurinn gerir mér heldur ekki auðveldara fyrir þar sem ég hef ekki enn fengið námslánin greidd :( Nú í gær var fyrsta bænastund okkar nýstofnaða bænahóps. Meðlimir hans eru ég, Camilla og Miriam. Við áttum rosa fína kvöldstund saman og ætlum að reyna að hittast einu sinni í viku næst á föstudag.
Nú um helgina er ég að vinna í töskubúðinni og svo sunnudagaskólanum áður en ný skólavika hefst.
Komin "heim"
Nú er ég komin heim í litlu sætu íbúðina mína hér í Osló eftir æðislega dvöl heima með fjölskyldunni um jólin. Jólafríið var alveg yndislegt, það var svo gott að fá að vera með fjölskyldu og vinum yfir hátíðarnar. Ég stóðst allar freistingar hvað matarprógrammið varðar og náði eflaust af mér einhverjum kílóum til viðbótar við þau 15 sem ég hef þegar misst. Ég setti inn myndir af þrettándaboði hjá honum Guðbrandi frænda,...

....en fleiri myndir eru á leiðinni :) Ég var töluvert með hana Emmu litlu hjá mér síðustu dagana fyrir heimför og það var rosalega gaman. Emma er nottla bara yndisleg, ofsalega róleg og góð, en um leið ákveðin og hugrökk. Ég hugsa að hún sé perfect match fyrir Fróða og ég get ekki beðið eftir því að Halla vinkona komi til mín í febrúar með hana Emmu litlu í farteskinu :)

Ég setti fleiri myndir af Emmu litlu í albúmið hennar.
Hér er alveg ofboðslegur kuldi enda frostið farið niður fyrir 20 gráður. Ég fór og náði í hann Fróða minn til Camillu í gær og það var svo yndislegt að sjá litlu músina mína aftur, enda knúsaði ég hann hreinlega í klessu. Má samt ekki gleyma að það var æði að hitta Camillu og Torje aftur og við áttum fína kvöldstund saman. Mér tókst einhvernveginn að missa af T bananum og strætónum tvisvar á leðinni heim í gærkvöldi samt og í þokkabót fór ég út einni stoppistöð of seint svo ég þurft i að labba í hálftíma í frostinu með Fróða og búrið og allt hans hafurtask. Ég svaf svo auðvitað yfir mig í morgun, en tókst að koma mér í vinnuna á mettíma og átti ágætan, en samt pínu skrautlegan dag í vinnunni.
Á morgun þarf ég að vinna i sunnudagaskólanum og svo er planið að fara í einhverja góða göngu með Fróða. Hann er reyndar farinn að hoppa á þrem fótum í kuldanum svoleiðis að ég þarf að kaupa loppusokka fyrir hann á mánudaginn, grey kallinn. Hann verður nú ekki ánægður með það!
Gleðilegt ár 2010!
Það hefur verið yndislegt að fá að vera heima um jólin. Mér reyndist erfitt að halda mig við matarprógrammið innan um allan hátíðarmatinn, en stóðst þó þá þolraun. Ég fékk margar frábærar gjafir sem ég er þakklát fyrir. Ég hef þurft að þola að vera kölluð "the scrooge" þar sem ég vil ekki sjá jólagúmmelaðið né jólatréð sem ég er með ofnæmi fyrir. Nú höfum við pabbi brennt það á báli, bara til að átta okkur á því að jólarósin gæti verð sökudólgurinn! Áramótin voru fín, þó ég muni ekki eftir öðrum eins reykmökk yfir Reykjavík, við sáum enga flugelda nema þá sem við skutum upp sjálf!
Hin hefðbundna pizza var á boðstólum, en ég utbjó mína eigin míní "pizzu" úr hveitikími.



Að vana eru fleiri myndir í myndasafninu
Ég fékk hana Emmu litlu í heimsókn í gær, sem var bara gaman. Hún er ekkert smá dugleg og opin. Var strax einsog heima hjá sér og lék sér við bangsann hans Fróða og skóflaði í sig blautmatnum.


Ég er ekki frá því að emma verði sætari með hverjum deginum, en það verður spennandi að sjá hvernig hún þroskast. Það er allt í fullum gangi með að sækja um innflutningsleyfi fyrir hana til Noregs og vonandi gengur eftir að ég fái að hafa hana með mér þegar ég flýg heim 8. janúar. Emma hefur hlotið ættbókarnafnið "Stekkur Emma til séra Helgu" svo það er einsgott ég ljúki nú við prestnámið úti :þ
Komin heim
Nú er ég komin heim í faðm fjölskyldunnar. Loksins. Prógrammið hefur þó ekki stoppað síðan ég lenti á klakanum og ég hef staðið í ýmsu síðan heim var komið á aðfaranótt mánudags. Hitti Kristínu í gær og við heimsóttum Önnu Jónu og sætu hvolpana þeirra Peru og Frímanns. Fór svo útað borða með stuðningshópnum mínum í MFM miðstöðinni sem var rosa gaman. Í dag þurfti svo að versla inn grænm

eti og hveitikím og mat sem ég get borðað. Keyrðum alla leið niðrí miðbæ til að fá flösku af sykurlausu sírópi til að nota í hveitikímsbaksturinn, svo afraksturinn verði aðeins bærilegri. Í dag var svo ákveðið að reyna að koma á nýrrri hefð í fjölskyldunni og allir söfnuðust hér saman við laufabrauðsgerð, með misgóðum árangri.

Ég kíkti svo aftur á hvolpana í dag og smellti af ófáum myndum sem þið finnið á myndasíðunni.

Í kvöld ætlum við mamma að baka piparkökur og svo er á dagskránni að slá á þráinn hjá einhverjum minna vanræktu vina :p
Þriðji sunnudagur í aðventu

Nú er orðið ansi langt frá sístu færslu og kannski í lagi að koma með smá update. Ég átti rosalega fína helgi í Kristiansand fyrir viku, þegar ég heimsótti Henriette, fyrrum bekkjarsystur mína. Ég fékk aðeins að kynnast vinum hennar á kollektívinu þar sem hún býr og var svo heiðursgestur í afmælisveislunni hennar á laugardeginum.
Ég fékk ódýra miða í rútuna, en þetta er fimm tíma ferðalag í tveggja hæða rútu með þráðlausu interneti. Ekki sem verst og svo fékk Fróði að fljóta ókeypis með og var hæstánægður í bílbelti í sætinu við hliðina á mér.
Ég er mjög ánægð að ég skellti mér og ekki veitti af að hlaða batteríin fyrir vinnuvikuna sem nú er loks á enda. Yfirmaðurinn minn í vinnunni var að fara úr límingunum í jólastressi og tók það allt út á mér. Ég var alveg að fara að springa og var gjörsamlega uppgefin þegar ég kom heim úr vinnunni í gær. Nú fæ ég að pústa smá, allavega á morgun áður en ég mæti aftur á þriðjudag. Í dag vann ég í sunnudagaskólanum með Sakaríasi sem var bara ágætt. Ég og Camilla vorum svo búnar að ákveða að hittast niðrí bæ og fara í messu, en henni var boðið í mat svoleiðis að ég var bara heima að þrífa. Á morgun ætla ég svo í einhvern góðan göngutúr með Fróða og planið er að hafa myndavélina með. Camilla verður kannski með í för, en hún er orðin eitthvað lasin svo kannski það verðum bara við Fróði.
Ég fór til læknis á föstudaginn, vegna útbrota sem ég er með yfir nánast allan efri hluta líkamans. Læknirinn tók blóðprufu og sagði mér að leita snarast til húðsjúkdómalæknis, svo vonandi fæ ég tíma sem fyrst.
Í dag er einungis vika þangað til ég kem heim og ég hlakka alveg óendanlega mikið til. Vona innilega að næstu dagar verði fljótir að líða!
Komin í jólafrí
Tíminn flýgur og nú eru jólin ekki langt undan. Ég kem á klakann eftir 2 og hálfa viku! Pælið í því! Tilhlökkunin er nottla ekkert lítil. Ég er komin í jólafrí frá skólanum sem er bara yndislegt. Búin að skila af mér öllum verkefnum og fór í prófið mitt á mánudaginn og það gekk bara ágætlega, held ég. Á sunnudeginum fyrir próf ákvað ég bara að vera kærulaus og skellti mér á aðventukvöld heima hjá Ingvild, bekkjarsystur minni. Auk mín hafði hún boðið Miriam og Eirin, fyrrum skólasystrum úr MF.

Hér eru Miriam og Ingvild að föndra jólakort

Ég og Eirin tókum nottla þátt.
Fróði var vinsæll um kvöldið, en Knut Helge, maðurinn hennar Ingvild var mjög hrifinn af honum og má alveg segja að það hafi verið gagnkvæmt. 
Fróði naut þess alveg í botn að vera klappað og klórað í bak og fyrir :D
Til viðbótar við jólakortin voru bakaðar súkkulaði kökur og sykraðar möndlur. Ég hélt mig þó frá bakstrinum til að falla ekki í freistni, en ég tók myndir af góðgætinu svo þið áttið ykkur nú á hvurslags góðgæti ég lét EKKI inn fyrir mínar varir :P

Möndlurnar hér að ofan, og ekki má gleyma
súkkulaðikökunum.

Ég varð svo auðvitað að segja þeim frá hvurslags siðir og hefðir við höfum á jólunum heima. Það fannst þeim alveg stórmerkilegt og hlógu þegar ég sagði þeim frá kartöflunni sem óþekku börnin fengju í skóinn. Ég var búin að stríða þeim töluvert um kvöldið, með athugasemdum sem þær mistúlkuðu sem kaldhæðnislegar og að launum fékk ég kartöflu með rauðum borða!
Það eru svo fleiri myndir af kvöldinu á myndasíðunni :)
Það var svo daginn eftir þetta frábæra aðventukvöld að ég fór í próf sem gekk bara ágætlega. Í gær fór ég svo í heimsókn til Camillu með jóladagatal sem ég hafði útbúið handa henni og við elduðum saman alveg rosalega gott grænmetislasagna, við fjarlægðum plöturnar og settum kjöt í staðinn þannig það má kannski með réttu segja að við höfum framið gróf helgispjöll á þessari uppskrift, en afraksturinn var mjög, mjög góður :p (Takk fyrir uppskriftina Fjóla :D)
Í dag hefst svo fyrsti af mörgum vinnudögum fyrir jól, en tíminn flýgur og nú á laugardag skellum við Fróði okkur í sex tíma rútuferð til Kristiansand að heimsækja fyrrum bekkjarsystur mína :)
Hafið það gott og njótið aðventunnar!
Bráðum koma....
.....blessuð prófin. Eða prófið. Nú er einungis rúm vika í prófið mitt og ég er búin að vera í töluverðu stressi, enda hellingur sem ég þarf að lesa og ekki bætir vinnan úr skák. Síðasta helgi var þó alveg frábær, það er að segja sunnudagurinn. Mamma átti þá 59 ára afmæli á meðan ég skellti mér á Hundelivsmessen með Camillu og Torje.
Ég gleymdi auðvitað myndavélinni, en rændi nokkrum myndum af vélinni hennar Camillu og setti inná síðuna. Ég keypti helling af fóðri gotteríi fyrir Fróða og fékk ókeypis heilsufarsskoðun fyrir kappann. Dýri þreyfaði hann í bak og fyrir og hann hefur nú að fullu náð sér í líðunum. Dýri sagði ennfremur að þetta hefði verið vegna þess að við fórum okkur of geyst í hundafiminni. Nú þarf ég að byggja hann upp smátt og smátt en við ættum að geta farið að æfa aftur innan skamms, sem eru nottla frábærar fréttir. 
Ég ákvað svo að gerast áskrifandi af Vi Med Hund, þar sem það var á einhverju svaka tilboði og fékk í tilefni þess senda þessa forsíðu með mynd af sjálfum kappanum.

Gæti nottla ekki verið meira sammála niðurstöðu kviðdómsins:p
Ég fór líka loks í gegnum myndirnar frá Íslandsheimsókninni , en albúmið er hérna á síðunni.

Endilega kíkið á þær :D
Það er kominn töluverður jólablær á síðuna mína, en ég ákvað að það væri þörf á smá jólastemmingu núna í myrkri, rigningu og kulda. Í dag var ég í vinnunni með Fróða kallinn, en þar á hann dyggan aðdáendahóp. Fólk sem vinnur í senterinu og kemur bara til að heilsa uppá prinsinn. Eftir vinnu keypti ég jólaljós í gluggana hjá mér og lítinn dúk til að hafa á borðinu. Svo verður jólahreingerning eftir prófið þar sem verður skreytt rækilega.
Í desember er dagskráin vel þjöppuð enda verð ég að vinna helling og kíki svo til Kristiansand í heimsókn til Henriette vinkonu. Í næstu viku eru hins vegar þrír skilafrestar sem renna upp og áframhaldandi prófalestur og vinna í fyrramálið.
Mitt í öllu þessu er ég dugleg í fráhaldinu mínu, en er þakklát fyrir allar bænir, sérstaklega núna í prófkvíðanum.
Hundelivsmesse um helgina
Tíminn flýgur og þessi vika er bráðum á enda! Prófið mitt nálgast óðum auk ófárra skilafresta og því búið að vera svolítið stress síðustu daga. Í ofanálag er ég að vinna á morgun, en ég kippi bókinni með ef ég skyldi fá tækifæri til að lesa.
Í dag er ég búin að vera þrjár vikur í fráhaldinu mínu! Þetta hefur gengið vonum framar, en þó ekki áreynslulaust. Árangurinn lætur heldur ekki á sér standa og ég hef grennst um tæpar tvær fatastærðir á þessum þrem vikum, sem verður að teljast nokkuð gott. Þá er bara að vona að þróunin haldi áfram í þessa átt næstu vikur og mánuði :)
Á sunnudaginn, afmælisdaginn hennar mömmu, verður Hundelivsmesse á Hellerudsletta og ég og Camilla munum að sjálfsögðu mæta. Ég hlakka til enda verður nóg um að vera: hundafimi, hundadans, sölu og kynningarbásar og þar fram eftir götunum. Vonandi heldur Fróði sig á mottunni í þetta sinn, en hann tók nokkrar gelt aríur þarna síðast, eða alveg þangað til bullmastiffinn fyrir framan hann fékk nóg og senti honum illt auga. Þá snarþagnaði minn.
Þetta er þó ekki öll dagskráin því um kvöldið kemur Marte í heimsókn og við munum allar þrjár borða kvöldmat saman. Ég á því vonandi góða helgi í vændum og vona að helgin ykkar verði líka ánægjuleg.
Loksins komin helgi
Dagarnir eftir komuna aftur hingað út hafa verið misgóðir og miserfiðir. Nú hef ég verið í fráhaldinu mínu í 2 vikur!!! Hugsa ég hafi borðað meira af grænmeti á þessum tveim vikum en alla ævina samanlagt. En mér líður vel á sál og líkama og er þakklát fyrir að vera í þessum bata. Að venju hef ég haft í nógu að snúast. Nú er einungis tæpur mánuður eftir af skólanum og því heilmikið af verkefnum sem þarf að klára og prófalestur sem þarf að hefjast. Helgin verður því vonandi nýtt skynsamlega. Ætla líka að prófa mig aðeins í eldamennskunni svo ég fái nú inn einhverja fjölbreytni á matseðilinn. Er með lista af allskyns grænmeti sem ég ætla að kaupa, en ég held það sé vissara að prenta út myndir af því líka. Nú hefði ég sko þurft Kötu, eða Fjólu eða Höllu eða einhverja af mínum yndislegu vinkonum til að hjálpa mér! En stuðningurinn sem ég hef fundið frá fjölskyldu og vinum hefur verið nær áþreyfanlegur síðustu daga og ég er þakklát fyrir bænir ykkar. Fróði virðist hins vegar vera sá eini sem er ekki sáttur við að ég sé að taka aðeins til í matarræðinu. Það eina sem fellur á gólfið eða í tunnuna er eitthvað ógislegt grænmeti. Fuss og fí. Í "skaðabætur" fékk hann þó nýja peysu úr Accessories. 
Hann fer ekki leynt með ánægju sína eins og sést á myndinni. Ég er samt frekar fúl af því að allur fíni snjórinn sem var fallin hérna, hefur nú skolast burt. Ég sem ætlaði að fara i fína vetrargöngu með Fróða á morgun og hafa myndavélina með og alles. Oh well...
Nú ætla ég að glápa kannski á einn þátt í viðbót áður en ég fleygi mér í bælið. Hafið það gott!
Fróði á afmæli

Nú er ég komin aftur í íbúðina mína í Osló eftir æðislega viku heima á Íslandi. Ég hafði ekki undan að hitta mína frábæru vini og fjölskyldu heima. Þess á milli var ég á námskeiði hjá MFM miðstöðinn heima og er nú kominn á strangt matarprógramm. Ég tók eitthvað af myndum sem ég ætla að hlaða inn fljótlega. Ég hef haft í nógu að snúast síðan ég kom hingað út aftur í fyrradag. Vinna og skóli að vana, auk þess sem hellings tími fer í að elda mat og útbúa brauð úr hveitikími.
Í dag er Fróði prins orðinn fjögurra ára í dag! Hann fékk auðvitað íslenska lyfrapylsu, nýtt beisli og bangsa. Hann fékk svo góðan göngutúr og fær annan ennþá lengri á sunnudag, en þá ætla ég að labba kringum Sognsvann með honum.

Prinsinn með gjafirnar sínar, það eru svo fleiri myndir á myndasíðunni.
Á morgun þarf ég hins vegar að vinna í töskubúðinni, en ég hef skólabækurnar með í von að ég fái tíma til að glugga aðeins i þær, enda ekki vanþörf á.
Set inn fleiri myndir fljótlega!
Fall er fararheill
Nú eru einungis 5 dagar í að ég komi á klakann og ég get varla beðið!!! Tíminn verður hins vegar fljótur að líða þangað til enda þarf ég að skrifa verkefni, mæta í skóla og vinnu, þvo þvott og já, þetta vanalega.
Í gær hélt ég andakt í skólanum mínum, það gekk vonum framar og ég fékk mjög góð viðbrögð frá kennaranum og nemendunum i hópnum mínum. Það var svo strax í næsta tíma sem ég þurfti að vera með míní fyrirlestur um "tegntrekanten" sem gekk bara mjög vel líka.
Eftir skóla fór ég svo að ná í nýju gleraugun mín í gleraugnabúðina á horninu á Majorstuen. Ég skellti nýju glyrnunum strax á nefið, en hef kannski ekki gefið mér nógan tíma að venjast þeim því ég flaug á hausinn ca 2 metrum frá gleraugnabúðinni og lenti kylliflöt á götunni. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, en hafði í fallinu misst tauminn hans Fróða, hann hætti þó við að stinga af þegar hann sá ég hafði meitt mig. Bilarnir höfðu líka sem betur fer séð okkur og hægt á sér en ég dröslaðist á fætur og brosti til vegfarenda og sagði það væri allt i lagi með mig. Ég var hins vegar öll lurkum lamin og þegar ég kom heim tók ég verkjalyf. Ég ætlaði svo snemma í háttinn og lesa grískuglósur uppí rúmi, en þegar ég teygði mig eftir bókinni þrusaði ég kjammanum í skápahurðina og braut uppúr tönn.
Svoleiðis að í dag er ég tognuð í úlnliðnum, bakið í skralli og aum í kjálkanum með skaddaða tönn.
Geri aðrir betur!
María í heimsókn

Ég sótti hana Maríu mína útá lestarstöð á föstudaginn, og rétt náði að fylgja henni heim áður en ég þurfti að skjótast í grískutíma. Þegar ég kom heim aftur fórum við og versluðum í matinn og tókum á leigu Menn som hater kvinner. Hún var mjög spennandi og við nutum þess að horfa á hana eftir að hafa borðað kjúklingaréttinn sem við löguðum. Á laugardeginum var rigning og leiðindaveður, en við létum það ekki stoppa okkur, heldur fórum í Tusenfryd eins og við höfðum planað. Fyrst var þó Fróða komið fyrir í pössun hjá Miriam. Við áttum blautan og kaldan dag
í Tusenfryd og mér tókst bara að fá Maríu með mér í tvö tæki, en sjálf fór ég þrisvar í trérússibanann. María var ekki alveg með taugar í þetta heldur stóð bara og horfði á. Frá Tusenfryd tókum við strætó til Klöru þar sem við snæddum kvöldverð með henni og fjölskyldunni hennar. Börnin og barnabörnin voru í heimsókn svo við vorum um 14 manns. Á sunnudeginum fórum við í messu hjá Íslenska söfnuðinum og skelltum okkur svo á Jenta som lekte med ilden um kvöldið. Við urðum auðvitað að sjá framhaldið og það olli ekki vonbrigðum. Í dag var síðasti dagurinn okkar saman og við fengum alveg æðislegt veður.
Camilla kom með okkur á Akerbrygge þar sem við sátum úti á TGI Friday og tróðum í okkur alls kyns kræsingum. Ég fylgdi svo Maríu út á lestarstöð eftir frábæra helgi.
Það eru svo miklu fleiri myndir á myndasíðunni svo endilega kíkið þangað ;)
Nú tekur við verkefnavinna, próflestur, skóli og vinna.
Messa og kyrrðardagur

Trefoldighetskirkjan í Ósló
Vikan hófst ágætlega, en við Camilla áttum fínt kvöld saman á sunnudeginum og fórum í mjög góða Guðsþjónustu Trefoldighetskirken. Þetta er afar falleg gömul kirkja og virkilega notalegt að fara í messu þarna. Sniðið var fremur óhefðbundið og falleg og lifandi tónlist. Presturinn tók meðal annars viðtal við norskan stjórnmálamann, en dóttir hans tók líf sitt eftir að hafa farið í persónuleikapróf á vegum vísindakirkjunnar í Frakklandi í fyrra. Málið vakti mikla athygli fjölmiðla hér í Noregi og sterka andstöðu gegn vísindakirkjunni. Ég varð mjög snortin af þessari frásögn og hef þennan mann og fjölskyldu hans í bænum mínum.
Á mánudeginum fór ég til Solasen með hóp úr PT (verklegri/praktískri Guðfræði) þar sem við áttum hljóðan bænadag saman í fallegum kofa með útsýni yfir Oslófjörðinn. Ég hefði eflaust notið dagsins betur ef ég hefði ekki fengið mígreniskast aldarinnar. Í lestinni á leiðinni heim varð ég náföl og hristist og skalf og hélt það myndi hreinlega líða yfir mig. Ingveld bekkjarsystir mín reyndist mér afar vel og fór með mér á læknavaktina. Þar sem ekki var útlit fyrir að ég kæmist að í bráð fórum við í apótek og ég tók tvöfaldan leyfilegan skammt af sterkustu verkjalyfjunum sem ég mátti kaupa án lyfseðils og þá fyrst fór sársaukinn að minnka.
Ég drattaðist samt í skólan daginn eftir og í dag, og náði meira að segja að áorka heilmiklu í dag. Greiddi leigu og tryggingar, stússaðist í hinu og þessu og fór svo í klippingu, sem var vægast sagt þörf á. Inná milli hef ég þó verið iðin við að horfa á fyrstu seríu af Heroes sem ég keypti notaða á 100 kall :þ
Á morgun tekur við tiltekt og lærdómur, en María systir kemur á föstudag!!! Við erum komnar með fína dagskrá fyrir helgina og stefnum meðal annars á að fara í Tusenfryd á laugardaginn!
Hafið það gott :)
Engin afslöppun í dag...

...Nema kannski hjá Fróða!
Ég lét auðvitað plata mig í vinnuna í dag og ég og Fróði gerðum okkar besta að plata fólk til að versla. Verslunarmiðstöðin var hins vegar nær alveg tóm eftir þrjú, sem er reyndar venjan á laugardögum þar sem vínbúðin lokar þá. Á morgun verður hins vegar gerð önnur tilraun til að njóta "helgarfrísins" áður en annasöm vika tekur við. Ég ætla að fara í hundagarðinn með Fróða áður en ég hitti Camillu niðrí bæ klukkan 4. Við ætlum að borða saman og fara svo í messu í Trefoldighets kirken.
Ég fékk pappírana frá Vis Agria í póstinn í dag svoleiðis að nú er Fróði karlinn tryggður í bak og fyrir.
Varðandi síðuna þá hef ég verið dugleg að vinna í henni og vonandi lítur þetta ágætlega út. Svo er auðvitað skylda að skilja eftir komment :)
Varðandi komment
Jámm, vil endilega hvetja alla til að skrifa komment á síðuna mína, það er afar einfalt. Eina sem þú þarft að gera er að skrifa inn nafn og netfang og ýta á "post comment" þá færðu upp glugga sem biður um lykilorðið fyrir netfangið þitt, þú velur hins vegar að klikka á "post as guest" neðarlega í vinstra horninu og þá birtist kommentið.
Látið mig endilega vita ef þið lendið í vandræðum með þetta.
Helgin er komin
Þetta hefur verið annasöm vika, og ég er fegin að nú sé helgin loksins gengin í garð. Þessi vika var pökkuð af fyrirlestrum og tveim prófum auk þess sem ég hef verið að vinna. Það hefur verið gott að hafa nóg að gera, en ég fór aðeins yfir strikið núna og varð gjörsamlega örmagna á miðvikudagskvöldinu og orkaði ekki að mæta í tíma, heldur fór bara að þrífa hjá Klöru í staðinn og lærði svo undir Grískupróf þegar heim var komið.
Það hefur annars bara gengið nokkuð vel í náminu. Hefði þurft að lesa aðeins núna um helgina og byrja á einhverjum verkefnum, enda vil ég vera búin með sem mest áður en ég fer heim í október. Að því gefnu að ég verði ekki kölluð út í vinnu á morgun (veit að það vantar) verður bara afslöppun og smá tiltekt hér heima og svo kemur Camilla til mín eftir vinnu og við ætlum að borða saman og hafa það kósí. Fróði kallinn er svoleiðis búinn að þvælast með mér út um allt í töskunni, en ég er að skoða það núna að setja hann á hundaleikskóla kannski 1-2 í viku svo hann fái að hitta aðra hunda og svona, þar sem ég hef svo hrikalega mikið að gera.
Ég er annars nokkuð sátt við þessa síðu og vona að einhverjir kíki hér inn annað slagið og skrifi einhverjar athugasemdir. Mér þætti allavega afar vænt um það, enda búin að hafa mikið fyrir því að koma þessari síðu á laggirnar :þ
Hafið það nú gott og njótið helgarinnar, hvort heldur heimafyrir eða í vinnu!



View Comments